Heyr heyr óskar eftir umsóknum um starf forritara.
Starfið felst í allskyns vefforritun, utanumhaldi um vefsíður fyrirtækisins og ýmislegt annað tengt tölvukerfinu. Einnig er um að ræða þátttöku í uppbyggingu fyrirtækisins og hugmyndavinnu vegna nýrra verkefna.
Hæfniskröfur:
Við leitum að skipulögðum, jákvæðum og drífandi einstaklingi með góða samskiptahæfileika. Viðkomandi þarf að hafa mikla reynslu í html, css, flash og hvaða nafni sem það kann að nefnast, auk þess að hafa reynslu af uppsetningu vefverslana, tengingu við bókhaldskerfi o.fl. Einnig er kostur ef viðkomandi hefur reynslu af DVD forritun.
Fagmennska, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mikil lipurð í mannlegum samskiptum eru skilyrði. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið er hlutastarf og er vinnutími nokkuð frjáls.
Umsóknir skulu sendar á andri@heyrheyr.is fyrir 30. mars 2010.
Andri Franklín Þórarinsson veitir allar nánari upplýsingar á andri@heyrheyr.is eða í síma 693 8436.
Endilega deilið þessu með þeim sem ykkur þykir líklegur til þess að passa vel í fyrirtækið.
Ef þú segir einhverjum frá auglýsingunni og við ráðum hann/hana, þá færð þú að launum jólaspilið sem við erum að vinna að, fyrir jólin 2010.